Posted on Wednesday 12 March 2008
Ég elska iPod. Það er svo gaman að geta hlustað á tónlist á leiðinni í skólann, rólega tónlist á meðan ég er að leggja mig, uppörvandi tónlist þegar ég er í líkamsrækt. Að hlusta á fræðandi hljóðbækur getur verið algjör snilld. Þá lærir maður ýmsa hluti sem eru venjulega ekki kenndir í skólabókum. Maður getur líka nýtt tímann betur með því að hlusta á hljóðbækur þegar maður er í langri biðröð, löngu ferðalag eða að versla í Bónus.
Stundum flækist iPod snúran þegar maður setur hana í vasann. Þá þarf maður að leysa flækjuna í hvert skipti sem maður ætlar að hlusta á iPodinn, sem getur verið oft á dag. Sumir láta þetta fara í taugarnar á sér. En snúran þarf ekki að flækjast. Viltu að hún flækist? Hélt ekki.
Tökum hérna dæmi um hvernig er hægt að fyrirbyggja þennan vanda:
Klæðast buxum og skyrtu. Vertu með iPodinn í buxnavasanum. Þræddu iPod snúruna undir skyrtuna og út í gegnum kragann. Svo þegar þú þarft að hætta að hlusta, þá ýtirðu á pásu og leggur ipod snúruna meðfram tölunum á skyrtunni, og felur heyrnatólin innan við skyrtuna. Þannig þarf ekki einu sinni að sjást að þú sért með iPod á þér. Næst þegar þú ætlar að hlusta á ipodinn þá er engin flækja, bara toga í snúruna og grípa í endana og setja í eyrun. Svona geturðu haft þetta allan daginn. Og þess vegna elska ég að ganga um í skyrtum.
Önnur leið er að vefja snúruna bara utan um iPodinn. Þá er snúran aldrei flækt. Maður getur einfaldlega vafið snúruna af án þess að þurfa að hugsa.
Það eru til dæmis til sérhannaðar vörur til þess að leysa þetta vandamál! Jeminn eini.
Er eitthvað fleira sem hefur farið í taugarnar á þér? Hefur þér dottið í hug að finna leið til þess að leysa vandann? Er kannski fólk út í heimi sem hefur lent í sömu vandræðum og þú, fundið lausn á því, og bloggað um það á netinu? Ertu búinn að prófa að googlea það?
Fólk hefur víst verið að googlea “Helgi Vilberg” í von um að finna Helga Vilberg, listmálara og skólastjóra Myndlistaskólans á Akureyri. Ég er ekki hann, en síðan hans er helgivilberg.blog.is.